Við erum systkinin Sara Nadía og Steindór Örn





Sara Nadía er lítil prinsessa sem kom í heiminn þann 31. júlí 2005, kl. 12.15. Hún lét nú aðeins bíða eftir sér og kom viku eftir áætlaðan fæðingardag, enda gera sannar prinsessur hlutina eftir sínu höfði ;o)
Hún var 16 merkur eða 4030 gr. og 53 cm með dökkt, liðað hár og ofsalega falleg dökk augu.



Steindór Örn er lítill prins sem kom í heiminn þann 26. september 2007, kl. 1.19. Hann lét líka bíða eftir sér og kom líka í heiminn viku eftir áætlaðan fæðingardag. Hann er prins og auðvitað gera prinsar hlutina líka eftir sínu höfði ;)
Hann var 19 merkur eða 4765 gr. og 52 cm. með ljóst hár og hanakamb og alveg ofsalega falleg lítil blá augu.





Mamma okkar heitir Þórhildur Ýr Arnardóttir og pabbi heitir Hannes Steindórsson. Þau eru svo heppin að eiga bestu, yndislegustu og flottustu börnin í heiminum!